| Author |
Topic Search Topic Options
|
Vucinic
Nýliði
Joined: 26 Júlí 2009
Location: Iceland
Online Status: Offline
Posts: 62
|
Topic: Leikmannakaup sumarsins! Posted: 07 Apríl 2010 at 11:13 |
Nú er orðið alveg ljóst það sem margir spjallverjar hafa verið að benda á í vetur að þetta lið okkar er engan veginn nógu sterkt til að vinna einhvern alvöru bikar! Það vantar helling uppá eins og sást glögglega í Barcelona leikjunum og einnig voru menn svosem búnir að sjá það í leikjunum gegn Chelsea og Manchester United fyrr í vetur.
Ef við byrjum á þeim stöðum sem við þurfum að versla í sumar þá sjá það ALLIR að markvarðarstaðan okkar er í besta falli lélegt grín með Ibba Dalton þar fremstan í fokki!
Ekki væri verra að vera með annan miðvörð til takst heldur en Man Utd. rejected-ið Silvestre sem var aaagalegur gegn Manchester í meistaradeildinni í fyrra og ekkert skánaði hans framistaða gegn Barcelona í gær!
Bakvarða stöðurnar eru fínar að mínu mati, sérstaklega núna þegar Clichy er kominn í form. Við eigum einnig fína backup í þeim Eboue og Gibbs.
Miðjumenn: Song og Diaby báðir búnir að bæta sig helling á þessari leiktíð og ekkert útá þá að setja, Fabregas er náttúrúlega bara í allt öðrum klassa en aðrir sókndjarfir miðjumenn og er klárlega einn sá besti í ensku deildinni. Það er samt frekar slappt að ef einhver þessara meiðist þá er Denilson fyrstur inn! Það er óásættanlegt!! Að öðru leiti finnst mér miðjan okkar ansi góð.
Vængmenn eru hedur ekkert vandamál að mínu mati með Arshavin, Nasri, Rosicky og Walcott, einnig gæti Wilshere farið að detta þar inn.
Svo er það framherjastaðan! Það að við seldum Adebayor fyrir tímabilið var frábært.. En að kaupa engan í staðinn er gjörsamlega fáránlegt!! Ég vildi ólmur fá Vucinic frá Roma en ekki kom hann frekar en aðrir sóknarmenn! Að vera með einn alvöru framherja (RVP) og svo ekkert skárra en Bendtner ÞEGAR hann meiðist er ekki góð leið til að vinna titla! Grey Eduardo er alveg búinn að missa allt sjálfstraust, alla snerpu og sprengikraft eftir fótbrotið hérna um árið og er bara búinn á því.
Ég er spyr því hverja viljið þið fá í sumar til að við eigum nú einhvern séns á að vinna titil næsta tímabil??
|
 |
Eythorernir
Byrjunarliðsmaður
Joined: 28 September 2007
Location: Iceland
Online Status: Offline
Posts: 391
|
Posted: 07 Apríl 2010 at 11:31 |
|
Ég verð að vera ósammála því að liðið sé ekki nógu sterkt að vinna bikar. Það eru rúmlega 6-8 leikmenn fjarverandi í hverjum einasta leik og það finnst mér mest óásættanlegt og verður að laga, því þessir leikmenn eru með líkama sem er búinn til úr gleri og meiðast því við minnsta tilefni. Það er það sem mér hefur fundist þurfa að laga.
Bendtner hefur verið að bæta sig stöðugt á leiktíðinni finnst mér. Hann hefur í fjarveru Robin verið að skora nokkuð mörg mörk og svarað gagnrýninni fínt finnst mér. Eitt af aðalgöllum hans finnst mér er að hann er klaufi. Ég efast um að við getum fengið betri backup en Bendtner þar sem að flest allir framherjar eins og Persie, Rooney og þessir gæjar, sem að geta unnið leikinn uppá eigin spýtur, sætta sig alls ekki við að vera á bekknum. Bendtner er fínn að koma sér í færi og það vantar bara að klára þau, en hann hefur þó verið að skora alveg slatta.
Denilson finnst mér fá pínulítið ósanngjarna gagnrýni. Hann hefur jú verið skugginn af sjálfum sér á tímabilinu, en hann hefur sýnt það á síðustu leiktíðum að mínu mati að hann hefur það sem þarf til þess að verða eitthvað gott. Hann hefur átt við meiðsli að stríða í baki, sem er örugglega erfiðasti staðurinn til að díla við meiðsli.
Hinsvegar, þá er ég sammála um að Arsenal þurfi á markverði að halda. Eins og Williwood sagði einhverntíman fyrir stuttu, þá getur hann Almunia gert erfiðu hlutina mjög vel, en er algjörlega fyrirmunað að gera einfalda hluti vel, og Arsenal þarf ekki svoleiðis markvörð. Arsenal þarf markvörð sem gerir bæði vel. Ég tel Fabianski hafa það sem þarf. En ekki búast við því að hann komi með e-rja stórbrotna frammistöðu með því að setja hann svona allt í einu inní bikarkeppnina eða e-ð. Hann þarf að fá að spila til að öðlast þá reynslu og sjálfstraust sem þarf í þetta.
Mannone er fínn til að vera markvörður númer 2 á eftir Fabianski. En hinsvegar eftir nokkur ár hef ég trú á því að þessi ungi pólski sem núna er í láni hjá Brentford, muni koma til með að standa í marki okkar eftir eitthver ár. Wojciech Szczesny (Ég trúi því ekki að ég kunni að stafsetja þetta.. haha (: ), er skilst mér, án þess að hafa persónulega skoðun á honum þar sem ég hef ekki séð hann spila, þvílíkt efni og er skilst mér í dag besti markvörðurinn í League One.
Ég er einnig sammála því að Arsenal þurfi miðvörð. Mér finnst Silvestre einn sá lélegasti varnarmaður sem hefur klæðst treyju Arsenal ásamt Pascal Cygan. Phil Senderos hefur þó náð góðum árangri einstaka sinnum þegar hann hafði sjálfstraustið í það, og sérstaklega tímabilið sem við fórum í úrslitin í Meistaradeildinni. Hinsvegar er ég að hugsa hvern á að fá, en frekar vill ég fá Senderos aftur frá Everton heldur en að láta Silvestre hanga þarna. Campbell er fínn en skortir þol sökum aldurs, en hann er fínn til að bakka upp. :)
|
 |
VidarOrn
Byrjunarliðsmaður
Joined: 28 September 2007
Location: Iceland
Online Status: Offline
Posts: 427
|
Posted: 07 Apríl 2010 at 11:43 |
|
Ef við styrkjum nokkrar stöður á vellinum eigum við vel séns á titilum næsta tímabil, en aðeins ef Wenger opnar budduna því liðið í dag er ekki með nægilega breidd.
Það vantar, eins og flestir hafa áttað sig á, virkilega góðan markvörð í liðið. Almunia er ágætis leikmaður, en hann er ekki nægilega stöðugur til að leika sem aðalmarkvörður. Fyrir mér er hann eiginlega hinn fullkomni varamarkvörður. Þekki svo sem ekki markmannamarkaðinn í dag en Wenger hlýtur að geta fundið einhvern, sumir halda ekki vatni yfir þessum Akinfeev (eru það ekki bara FM órar?) en ég hef lítið séð af honum og það sem hann gerði á EM 08 var ekkert spes.
Okkur vantar einnig miðvörð, Silvestre fer í sumar, Campbell er aðeins með samning út leiktíðina, samningur Gallas er einnig að renna út og því lengri tími sem líður því ólíklegra verður að Wenger endurnýji samninginn við Gallas. Eftir stödnum við með Vermaelen og Djourou sem ekki hefur spilað í heilt tímabil. Fáum náttúrulega Nordveidt inn en hann er enn bara 19 ára, samt búinn að spila dáldið í Þýskalandi og spilaði mikið í fyrra hjá Lillestrom. Mér finnst vanta einn sterkan í þennan hóp, einhvern fullmótaðann. Wenger var sagður hafa áhuga á Hangeland en ekkert varð úr, og hann hefur ekki verið eins öflugur á þessu tímabili og í fyrra (kannski bara one season wonder?). Ef West Ham fellur er kannski hægt að fá Upson ódýrt en ég efast um að Wenger hafi áhuga á honum og að hann sé nógu góður.
Mér finnst síiðan vanta inn á miðjuna hjá okkur. Diaby, Song og Denilson eru allt góðir leikmenn en Diaby er oft meiddur og Denilson er ekki nógu stöðugur til að spila reglulega. Þetta mætti líka leysa með að fá vinstri kantmann og færa Nasri alfarið á miðjuna. Wenger er enn sagður hafa áhuga á Melo, hef ekki séð mikið af honum og get því ekki lagt mat á hann.
Í lokin finnst mér vanta alvöru markaskorara í liðið, það er erfitt að sjá þegar Fabregas og RvP eru ekki liðinu hvaðan mörkin eiga að koma, Bendtner gæti verið lausnin en ég hef efasemdir um að hann geti náð 20+ mörkum á tímabili, Eduardo gæti einnig verið lausn ef hann finnur sitt gamla form aftur en það er ólíklegt. RvP hefur alltaf verið mikið meiddur og því óskynsamlegt að reiða sig eingöngu á hann í framlínunni. Tel næsta öruggt að Wenger sé búinn að semja við Chamakh, vonum bara að hann bæti einhverju við liðið.
|
|
Viðar Örn
|
 |
Maximus
Nýliði
Joined: 02 Mars 2009
Online Status: Offline
Posts: 226
|
Posted: 07 Apríl 2010 at 12:04 |
Langþreytt umræða!!!! Haldiði virkilega að það verði einvherjir keyptir? Ekki er ég að sjá það, þið þekkið stefnu wengers.. og lifið í draumaheimi! ég er allavega búin að átta mig..
í mesta lagi verður keyptur einn miðvörður og 2 seldir! Mesta lagi!
Edited by Maximus - 07 Apríl 2010 at 12:05
|
 |
Gunners
Nýliði
Joined: 08 Ágúst 2009
Location: Iceland
Online Status: Offline
Posts: 116
|
Posted: 07 Apríl 2010 at 12:23 |
|
Já ég er nokkuð sammála Eythirernir. En mér finnst að það ætti alvarlega að kanna hvað er það sem veldur þessum meiðslum. Hvort það sé æfingarvöllurinn , of mikið álag eða hvað. Það á bara ekki að ske að i hverrjum viku séu 5 leikmenn tognaðir í læri, kálfa eða nára
Edited by Gunners - 07 Apríl 2010 at 12:23
|
 |
arsene-al
Fyrirliði
Joined: 29 Janúar 2009
Location: Iceland
Online Status: Offline
Posts: 604
|
Posted: 07 Apríl 2010 at 13:23 |
Það verða náttúrulega að vera kaup á einhverjum reynsluboltum!! Nú kunna einhverrjir að hugsa"höfum við ekki byggt upp reynslu í þetta lið?" jú það kann vel að vera að það sé komin reynsla og hún þá í flestum þáttum bitur og svekkjandi segi ég,fáir sem engir bikarar,stöðugt ströggl við meiðsli.
Þetta reynir örugglega neikvætt á unga leikmenn!! Við höfum séð áhrifin sem kaup og koma á leikmönnum með einhverja reynslu á bakinu(Arshavin,S. Campbell) hafa fært okkur í mörgum tilfellum.
Jú víst er þörf eftir sem áður í unga og efnilega leikmenn, en þeir verða þá að koma í bland við reyndari leikmenn í réttum hlutföllum!
|
|
A man happened upon a tumbstone that read:"Here lies Peter Hallewood a good man and a Manchester United fan." The man read it and asked:"when did they start putting two people in one grave?"
|
 |
Gunners
Nýliði
Joined: 08 Ágúst 2009
Location: Iceland
Online Status: Offline
Posts: 116
|
Posted: 07 Apríl 2010 at 13:57 |
|
http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=89543 jæja gamli eitthvað byrjaður að hugsa um að bæta við hópinn
|
 |
Elmo
Nýliði
Joined: 23 Febrúar 2008
Location: Iceland
Online Status: Offline
Posts: 114
|
Posted: 07 Apríl 2010 at 14:26 |
Markmann : Igor Akineev ( CSK Moskva )
Varnarmann: Danny Wilson ( Rangers )
Miðjumann: Felipe Melo ( Juventus )
Framherji: Marouane Chamakh
Sko að fá þessa leikmenn fyrir næsta tímabil yrði svakalega sterkt.
Auðvitað óskhyggja en held að Wenger ætti að drífa sig í að klófesta Akineev því þetta er bara góður markmaður og á eftir að verða betri og betri.
Svo nefni ég Danny Wilson hjá Rangers því þetta er ungur strákur og mikið efni. Á eitt ár eftir af samningi sínum og væri fín varaskeifa fyrir Gallas til að byrja með.
Felipe Melo hefur verið orðaður við Arsenal. Þótt að hann hafi fengið þessi ruslverðlaun í janúar að þá finnst mér hann vera mjög sterkur og góður leikmaður sem Wenger gæti gert að heimsklassa leikmanni. Ekki í fyrsta skipti sem hann hefur bjargað leikmönnum frá Ítalíu sem var búið að gefast upp á ( HENRY og VIEIRA ). Hann væri bara frábær viðbót á miðjuna hjá okkur.
Marouane Chamakh væri frábær kaup fyrir Arsenal. Verða örugglega fyrstu kaup Wengers í sumar. Góður skallamaður, tæknískur og klárar færin sín vel.
Svo mætti alveg selja leikmenn frá okkur sem eiga ekki heima í okkar gæðum.
Til dæmis = Silvestre, Almunia, Merida og Vela
|
|
Hvaðan kom hann...?? Hvað er hann...?? Hvert er hann að fara...??
|
 |